Leikarinn góðkunni Matthew Perry var í sjónvarpsviðtali á dögunum til þess að ræða nýjasta leikrit sitt, sem hann bæði skrifaði og leikur í, The End Of Longing. Eitthvað virðist áhorfendum hafa brugðið við að sjá Matthew á skjánum og á Twitter var ekki annað að heyra en að fólk væri í sjokki yfir útliti leikarans. En fólk virðist eiga mjög erfitt með að sætta sig við að Matthew eldist eins og aðrir og muni ekki líta út eins og kornungur Chandler Bing að eilífu.
Sjá einnig: Matthew Perry sagður óþekkjanlegur
Perry var gestur í morgunþættinum This Morning.