Maðurinn sem kallaði sig áhugaljósmyndara á Facebook hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn ungum stúlkum. Við fjölluðm ítarlega um manninn á Hún.is fyrir nokkrum mánuðum og sendum lögreglunni allar þær upplýsingar sem við höfðum og í framhaldi var maðurinn handtekinn og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan, eða frá því um miðjan janúar. Hann er grunaður um kynferðisbrot gegn fjölmörgum ungum stúlkum.
Stúlkurnar eru samkvæmt heimildum okkar nítján talsins. Maðurinn tók nektarmyndir af stúlkunum og bauð sumum þeirra 100.000 krónur fyrir. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa haft kynmök við stúlkur undir 15 ára aldri sem er kynferðislegur lögaldur. Hann er einnig talinn hafa tælt eldri stúlkur til kynmaka.
Hann er einnig grunaður um nauðgun. Maðurinn, sem kallaði sig áhugaljósmyndara á Facebook, hafði samband við stúlkurnar gegnum samskiptamiðilinn og tældi þær gegnum Facebook. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi en hann sat í gæsluvarðhaldi um tíma í fyrravetur. Þá var hann einnig kærður fyrir kynferðisbrot gegn stúlkum á liðnum misserum.
Málið verður þingfest á föstudag, sama dag rennur gæsluvarðhaldsúrskurður yfir manninum út en líklegt má telja að það verði framlengt.
Þinghaldið verður lokað og því fáum við ekki að vita hverjir ákæruliðirnir eru né hve margir.
Við fjölluðum ítarlega um málið og birtum fjöldan allan af reynslusögum stúlkna sem í honum höfðu lent. Við birtum einnig brot úr samræðum hans við ungar stúlkur. Hér fyrir neðan getur þú séð fréttir af manninum.
Íslenskur áhugaljósmyndari biður börn að afklæðast fyrir sig
Stúlka segir íslenskan áhugaljósmyndara hafa nauðgað sér
Íslenski áhugaljósmyndarinn hefur haft samband við fjöldann allan af stelpum
Hann tók utan um mig og byrjaði að kyssa mig – Frásögn 14 ára stelpu