Alanis Morissette (42) er ekki vön því að láta fylgjendur sína á Instagram bregða í brún, en nú breytti hún út af vananum og setti fallega mynd af sér alsnakinni á bólakafi í sundlaug. Hún er komin langleiðina á meðgöngu sinni, en fyrir á hún soninn Ever (5) með eiginmanni sínum Mario “Souleye” Treadway.
Sjá einnig: Alanis Morissette uppfærir lagið Ironic
Hún hefur verið gift Mario frá árinu 2012, en Alanis var áður í löngu sambandi með stórleikararnum Ryan Reynolds, sem á einmitt von á öðru barni sínu líka með eiginkonu sinni Blake Lively.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.