Jessica Simpson fæddi nýverið lítinn dreng. Jessica á 13 mánaða gamla dóttur fyrir með unnusta sínum Eric Johnson. Þeim “hjónum” fæddist lítill drengur á sunnudaginn og þau hafa nefnt drenginn Ace Knute Johnson.
Jessica fæddi drenginn með keisaraskurði og líðan móður og barns er sögð vera góð. Kanarnir hafa furðað sig mikið á nafni barnsins ef marka má ummæli fólks við frétt frá slúðurkónginum Perez Hilton. Þar gerir fólk mikið grín af nafninu Knute, en einhverjir benda á að nafnið komi frá Evrópu.
Knute er borið fram á ensku “Ka-nute”
Söngkonan fyrrverandi kom fram í Jimmy Kimmel fyrir nokkrum vikum síðan og sagði meðal annars að þessi meðganga hafi verið mjög frábrugðin hinni:
“Mér líður hræðilega, ég hef verið að æla, aldrei hefði mér dottið í hug að typpi myndi láta mér verða óglatt”
Svo bætti hún við:
“Jæja, ég býst við að nú viti allir að það sé strákur á leiðinni!”
Vinir parsins segja að brúðkaup sé á næstunni. Jessica sagði vinum sínum að hana langaði að gifta sig nokkrum mánuðum eftir fæðingu drengsins. Þau þurftu að fresta plönum sínumm þegar í ljós kom að Jessica var ólétt, nokkrum mánuðum eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn.