Hún er sko engin venjuleg amma, heldur ein af nýju stjörnum Instagram! Hún er þekkt undir nafninu Contouring grandma og getur þakkað frægð sinni barnabarni sínu, förðunarfræðingnum Tea Flego fyrir frægð sína.
Sjá einnig: Amma prófar sjálfvirkan bíl í fyrsta sinn
Livia er 80 ára gömul og býr á elliheimili, en nýtur þess jafnframt að láta barnabarnið sitt dekstra aðeins við sig. Hún fær alla meðferðina, skyggingu, lýsingu, gerviaugnhár og skærlita varaliti, svo dæmi séu tekin. Hinar konurnar á elliheimilinu eru alveg óðar í að fá sömu meðferð og Livia, enda engin furða!
Sjá einnig: Hún lítur út eins og voðalega saklaus og blíð amma…
Sjá einnig: 102 ára gömul dúlluleg amma blæs á afmæliskertin og tennurnar fjúka!
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.