Angelina Jolie tók þetta hús til leigu þremur mánuðum áður en hún sótti um skilnaðinn við Brad Pitt. Húsið er staðsett við ströndina í Malibu og er það algjörlega víggirt og gætir þar mikillar öryggisgæslu.
Sjá einnig: Angelina Jolie flýr með börnin
Angelina sendir aðstoðarkonu sína Holly Golean út um víða velli til þess að ná í allan þann varning sem hana og börn hennar vantar eitthvað. Angelina hefur látið útbúa sérstakt herbergi í húsinu, til þess eins að hittast og eiga þar samningaviðræður við lögfræðinga tengda skilnaðnum.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.