Á meðan orðrómur er um að Angelina Jolie og Brad Pitt hafi gengið í hjónaband um hátíðarnar þá er annar enn háværari orðrómur í gangi varðandi Angelina. Hún á semsagt að hafa verið yfir sig hrifin af Colin Farrell en hann vildi hana ekki svo hún sætti sig við Brad Pitt.
Angelina og Colin voru að leika saman í myndinni Alexander og fóru þá að hittast eitthvað og Angelina varð ofsalega hrifin af Colin, sendi honum meira að segja nokkuð svæsin hljóðskilaboð og myndbönd. Colin var ekki alveg að sjá sig fyrir sér með henni í sambandi og hætti að hitta hana meðan þau voru að kynna myndina sína.
Eftir þetta fór svo Angelina að leika með Brad Pitt í Mr & Mrs Smith og við þekkjum restina af sögunni.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.