Leikkonan góðkunna Anne Hathaway mætti í Óskarspartí hjá Vanity Fair í gærkvöldi ásamt eiginmanni sínum, Adam Shulman. Anne var stórglæsileg í kjól frá Naeem Khan og segja má að leikkonan gjörsamlega geisli á meðgöngunni. Ekkert hefur verið gefið upp um hvenær von er á erfingja Anne og Adam í heiminn en það er augljóslega ekki mjög langt í það.
Sjá einnig: Anne Hathaway: „Þetta er ekki vaninn hjá mér“