Grindarbotnsæfingar eru ekki bara hagnýtar heldur konum nauðsynlegar; æfingakerfið sem styrkir grindarbotsnvöðvana sjálfa getur hindrað þvagleka seinna á ævinni, veitt konunni aukinn kynferðislegan unað og jafnvel dregið úr bakverkjum.
Vissulega er hægt að þjálfa grindarbotninn í hljóði, án vitundar annarra – einsömul eða í fjölmenni – því æfingakerfið er svo einfalt í sjálfu sér. Nú er hins vegar loks að vænta breytinga, þar sem prótótýpa gagnvirka æfingakerfisins kGoal hefur litið dagsins ljós og fjáröflun stendur yfir til að hrinda bráðsniðugu apparati á markað.
Tækið, sem samanstendur af litlu appi eða notendaviðbót fyrir farsíma og handhægri pumpu (mælitæki) sem sett er upp í leggöng konunnar og mælir á einfaldan máta gegnum farsímaviðbótina, hversu oft konan hefur framkvæmt æfinguna og lætur einnig vita hvenær ætti að spenna vöðvana aftur.
Minna Life, hönnuðurinn sem stendur að baki kGoal segir hér í kynningarmyndbandinu sem sjá má að neðan að gagnvirkt æfingakerfið sem er sérhannað fyrir grindarbotnsæfingar þjóni í raun hlutverki „einkaþjálfara, iðjuþjálfa og mælitækis” í einu og sama tækinu.
Eins og stendur er tækið góða – kGoal kerfið – ekki fáanlegt á almennum markaði en Kickstarter fjáröflunarsíða sem sett var upp til að styðja við þá hugmynd að koma kGoal í hendur neytenda, hefur nú þegar aflað verkefninu 225.000 dollara fjárhæð, sem gerir vel rúmar 26.000.000 íslenskar krónur.
Upprunalega var Kickraiser markmiðið sett upp með 90.000 dollara markmið – eða rúmlega 10 milljón króna mark og er því augljóst að konur mega reikna með að kGoal komi á markað áður en langt um líður. Hér má sjá nokkuð fróðlegt kynningarmyndband um tækið sjálft en Kickstarter síðuna, sem inniheldur nánari upplýsingar um gagnvirka grindarbotnsþjálfann má nálgast HÉR
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.