Ariana Grande hélt tónleika í Madison Squere Garden þann 20.mars síðastliðinn. Átti söngkonan knáa erfitt með að halda andliti á meðan hún flutti lagið My Everything. En áður en lagið hófst var sýnt stutt myndband af afa hennar heitnum, þar sem hann hvetur hana áfram í tónlistinni: ,,Tónlist – viltu búa til tónlist? Gerðu það! Ekki vera hrædd. Láttu engan ógna þér. Farðu þínar eigin leiðir.”
Myndbandið hafði þau áhrif á Ariönu að erfitt var að flytja lagið – eins og myndskeiðið hér að neðan sýnir:
https://www.youtube.com/watch?v=Z81JnHZv8_A&ps=docs
Sjá einnig: Ariana Grande leikur Celine Dion
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.