Yfir 20 fyrirlestrar á einum degi
- Árlegt Fyrirlestramaraþon HR haldið næsta föstudag
- Einn af fyrirlesurum er hr. Ólafur Ragnar Grímsson
- Umfjöllunarefni fyrirlestra eru á sviðum tækni, viðskipta og laga
- Kennslu- og rannsóknarverðlaun HR afhent í hádeginu sama dag
Hið árlega fyrirlestramaraþon Háskólans í Reykjavík verður haldið föstudaginn 28. mars. Yfir 20 erindi verða flutt og er hvert erindi um sex mínútur. Erindin gefa innsýn í það fjölbreytta rannsóknarstarf sem unnið er innan háskólans.
Í hádeginu veitir forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, þjónustu-, kennslu- og rannsóknarverðlaun HR. Starfsfólk kýs þann aðila sem hlýtur rannsóknarverðlaunin en nemendur handhafa kennslu-, og þjónustuverðlauna. Hann mun jafnframt flytja erindi á Fyrirlestramaraþoni HR.
Meðal efnis í fyrirlestrum er Evrópurétturinn, eiginleikar vindsins og áhrif hans á brýr, þroskastig mannauðsstjórnunar, gerendur kynferðisbrota, tilraunasálfræði, hlutverk stjórnarmannsins og margt fleira.
Dæmi um áhugaverð erindi:
- Sönnunarbyrði í málum er varða áföll í tengslum við læknismeðferðir. Jóna Benný Kristjánsdóttir, doktorsnemi við lagadeild HR
- Siðfræðikennsla í viðskiptafræði. Þröstur Olaf, prófessor við viðskiptadeild
- Skrímsli eða fólk? Gerendur kynferðisbrota gegn börnum. Svala Ísfeld Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR
- Hreyfing og geðheilbrigði. Hafrún Kristjánsdóttir, sviðsstjóri íþróttafræðisviðs HR
- Big Data; What is it and why will it change your world? – Páll Ríkharðsson – Björn Þór Jónsson.
Allir eru velkomnir á Fyrirlestramaraþon HR og aðgangur er ókeypis.