Ashton Kutcher hefur ákveðið að selja piparsveina höllina sína í Los Angeles vegna þess að hún er ekki nógu barnvæn en hann á von á sínu fyrsta barni með leikkonunni Milu Kunis.
Ashton keypti húsið árið 2012 en þá hafði söngvarinn Justin Bieber einnig augastað á fasteigninni. Í húsinu eru fimm svefnherbergi og átta baðherbergi enda er eignin 871 fermetrar. Eignin á að kosta rúmlega 1300 milljónir en Mila og Ashton hafa nú þegar fjárfest í minni eign í Beverly Hills.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.