ATHUGIÐ! Rauð viðvörun milli 16-20 í dag!

Tilkynning frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu:

Veðurútlitið hefur versnað og nú hefur verið gefin út RAUÐ VIÐVÖRUN VEGNA VEÐURS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU og gildir hún frá kl. 16 -20 í dag, miðvikudag. Fólk er beðið um að vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjulausu á meðan óveðrið gengur yfir.

Tilmæli til foreldra/forráðamanna:

• Mikilvægt er að forsjáraðilar geri ráðstafanir til þess að sækja börn í skóla og frístundastarf tímanlega fyrir kl. 15:30 í dag, 5. febrúar.

• Forsjáraðilar þurfa að fylgja börnum í og úr skóla og frístundastarfi. Skóla- og frístundastarf fellur ekki niður nema það sé tilkynnt sérstaklega.

Minnum á nauðsyn þess að festa lausamuni til að koma í veg fyrir foktjón og að losa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón.

Vinsamlegast fylgist mjög vel með veðurspám.

Rauð viðvörun vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig verið gefin út fyrir morgundaginn, 6. febrúar, og gildir hún frá kl. 8 -13.

SHARE