Það kemur Jennifer Aniston ekki á óvart að Brad Pitt og Angelina Jolie séu að skilja. „Jennifer vissi að þessi dagur myndi renna upp,“ sagði heimildarmaður Page Six. „Allir sem eru í innsta hring Jennifer hafa alltaf litið á Angelina sem meistara í því að draga fólk á asnaeyrunum. Við héldum bara að þetta myndi enda með því að Angelina færi frá Brad fyrir annan mann.“
Sjá einnig: Marion er miður sín – Hélt ekki framhjá með Brad Pitt
Heimildarmaðurinn bætir við að Jennifer þyki enn vænt um Brad og óski honum alls hins besta: „Hún hefur haldið áfram með sitt líf og er hamingjusöm með Justi Theroux.“