Ekki er öll vitleysan eins – það er alveg á hreinu. Nú hefur faðir leikarans Matt LeBlanc, Paul LeBlanc, stigið fram og sagt frá því að Jennifer Aniston og sonur hans hafi átt í sjóðheitu ástarsambandi á meðan þau léku í Friends. Á þetta að hafa átt sér stað á meðan Jennifer var í hjónabandi með leikaranum Brad Pitt og LeBlanc var giftur Melissu McKnight.
Sjá einnig: Friends: Kvikmyndin sem við viljum öll sjá verða að veruleika
Í viðtali við tímaritið Star segir faðir LeBlanc:
Þau áttu í ástarsambandi, hann sagði mér það sjálfur. Þau áttu heita ástarfundi í búningsherbergi hans um leið og slökkt var á myndavélunum.
Paul LeBlanc.
Fjölmiðlafulltrúi Jennifer Aniston var ekki lengi að bregðast við sögusögnunum:
Þetta er uppspuni frá rótum. Alveg 100%. Jennifer Aniston og Matt LeBlanc hafa aldrei átt í rómantísku sambandi.
Matt LeBlanc hefur hins vegar ekki tjáð sig um málið.