Bananabrauð – Syndsamlega gott – Uppskrift

Bananabrauð er æðislegt nýbakað með smjöri og osti og mjólkurglasi til að skola því niður.

3- 4 þroskaðir bananar, stappaðir niður
1/3 bolli bráðið smjör
1 bolli sykur
1 egg
1 tsk vanilludropar
1 tsk matarsódi
Salt á hnífsoddi
1 og hálfur bolli hveiti

Byrjaðu á því að hita ofninn upp í 175°. Notaðu sleif og blandaðu smjörinu og bananastöppunni saman í stórri skál. Blandaðu svo sykri, eggi og vanilludropum saman við. Stráðu svo matarsóda og salti yfir blönduna og hrærðu saman. Hveitið fer svo í að lokum. Heltu deiginu í smurt form og bakaðu í 1 klukkustund.

SHARE