Bandaríska leikkonan Kirstie Alley er látin 71 árs að aldri eftir stutta baráttu við krabbamein. Leikkonan lést í faðmi nánustu fjölskyldu sinnar að því er fram kemur í tilkynningu sem börn hennar birtu á Twitter í nótt. „Lífsgleði og ást móður okkar fyrir börnum sínum, barnabörnum og mörgum dýrum, svo ekki sé minnst á sköpunargleði hennar, voru óviðjafnanleg,“ segir í yfirlýsingunni.
Kirstie Alley fæddist 12. janúar 1951 í Kansas og sló rækilega í gegn í hlutverki Rebeccu Howe í gamanþáttaröðinni Staupasteini eða Cheers á árunum 1987 til 1993.
Þá er hún einnig þekkt fyrir að hafa leikið í kvikmyndinni David’s Mother og rómantísku gamanmyndinni Look Who’s Talking.