Bankabygg er trefjaríkt heilsukorn sem gott er að nota í pott- og pönnurétti , grauta, salöt og súpur. Margir nota Bankabygg í kjötsúpuna og sem meðlæti með kjöt,- fisk,- og grænmetisréttum í stað hrísgrjóna.
Þetta salat er algjörlega geggjað og er af síðunni Allskonar.is
- 225 gr bankabygg
- 8 dl vatn
- –
- 1 meðalstór fennell, fínsneiddur
- 1 rauðlaukur, fínsneiddur
- 1 meðalstór gulrót, gróft rifin
- handfylli steinselja, söxuð
- 4 tsk fennelfræ, möluð/steytt
- 3 msk ólífuolía
- rifinn börkur og safi úr 1 sítrónu
- 1 msk fljótandi hunang
- 2 tsk sjávarsalt
- 1 tsk nýmalaður svartur pipar
Undirbúningur og Eldunartími: 45 mínútur
Byrjaðu á að sjóða byggið í vatni við meðalhita. Sjóddu í um 35 mínútur, helltu vatni af bygginu ef eitthvað er.
Skerðu grænmetið í skál og rífðu börkinn af sítrónunni út í.
Hrærðu saman fennelfræjunum (gott að steyta þau í mortéli fyrst til að fá bragðið fram), ólífuolíunni, sítrónusafanum, hunangi, saltinu og piparnum.
Bættu bankabygginu út í grænmetið og helltu dressingunni yfir. Blandaðu vel saman.
Smakkaðu til með meira salti og pipar eftir smekk.
Endilega smellið einu like-i á Allskonar á Facebook.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.