Föstudaginn 24. október næstkomandi kl. 14-16 fagna Barnaheill – Save the Children á Íslandi 25 ára afmæli í samkomusal Nauthóls í Nauthólsvík. Af því tilefni verður árleg Viðurkenning Barnaheilla einnig afhent, en hún er veitt fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.
Meðal þeirra sem halda erindi á afmælinu eru Hrefna Friðriksdóttir, dósent hjá HÍ og fyrrverandi stjórnarmaður Barnaheilla, Héðinn Halldórsson, upplýsingafulltrúi neyðaraðstoðar Save the Children, Herdís Ágústa Kristjánsdóttir, formaður ungmennaráðs samtakanna og Gunnar Hrafn Jónsson, fréttamaður og varamaður í stjórn Barnaheilla.
Vigdís Finnbogadóttir er verndari Barnaheilla og stofnfélagi númer eitt. Það var fagfólk á Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans sem hafði frumkvæði að því sumarið 1988 að stofna samtök sem hefðu það að meginmarkmiði að auka rétt barna í samfélaginu. Vigdís studdi dyggilega við undirbúningsstarfið og Barnaheill voru svo stofnuð rúmu ári síðar, 24. október 1989.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi eru frjáls félagasamtök. Helstu áherslur eru á að standa vörð um réttindi barna, baráttu gegn ofbeldi á börnum, heilbrigðismál og að efla áhrifamátt barna í íslensku samfélagi. Frá upphafi hafa samtökin haft Barnasáttmálann að leiðarljósi og lagt áherslu á starf innanlands. Samtökin vinna að mannréttindum barna með því að vera málsvari þeirra, efla menntun og veita mannúðar- og neyðaraðstoð þegar hörmungar dynja yfir samfélög.
Barnaheill eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children sem voru stofnuð í Bretlandi árið 1919 og starfa nú í 120 löndum. Þau eru stærstu alþjóðlegu frjálsu félagasamtök sem starfa í þágu barna í heiminum. Stofnandi þeirra, Eglantyne Jebb, var með fyrstu baráttumanneskjum fyrir mannréttindum barna. Hún skrifaði stefnuyfirlýsingu samtakanna árið 1921 sem síðar varð grunnurinn að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Helstu verkefni Barnaheilla þann aldarfjórðung sem samtökin hafa starfað:
1993 Geldingalækur á Rangárvöllum opnaður sem heimili fyrir börn í vanda
1997 Barnaspítala Hringsins afhent íbúð fyrir foreldra langveikra barna af landsbyggðinni
1999 Skólar byggðir í Kambódíu og kennarar þjálfaðir eftir átök í landinu
2001 Ábendingalína um óviðeigandi og ólöglegt efni á neti opnuð
2007 Uppbyggingar- og menntunarverkefni í Norður-Úganda
2009 Rósin, minnisvarði til heiðurs börnum sem eiga um sárt að binda opnuð í Laugardal
2009 Gagnvirki fræðsluvefurinn barnasattmali.is opnaður
2009 Bann við að beita börn líkamlegri og andlegri refsingu lögfest á Alþingi eftir athugasemdir Barnaheilla vegna dóms hæstaréttar sem braut gegn Barnasáttmálanum
2010 Átta ára drengur óskar eftir íbúð – skýrsla Barnaheilla um heimilisofbeldi
2012 Tannheilsa íslenskra barna – átak og undirskriftasöfnun sem leiddi til lagabreytinga
2014 Skýrsla Barnaheilla og Evrópusamtakanna um fátækt í Evrópu.
Auk útgáfu fjölda rita og veggspjalda, málþinga og ráðstefna sem samtökin hafa staðið fyrir til að vekja athygli á og ná fram breytingum á ýmsum málum er varða börn.
Nánari upplýsingar um starfsemi samtakanna er að finna á heimasíðunni barnaheill.is og í afmælisriti samtakanna, sem má finna hér: http://www.barnaheill.is/media/PDF/Blad_Barnaheilla_2014a.pdf
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.