Ekki var annað að sjá en að stórleikarinn Ben Affleck (43) hafi verið drukkin í spjallþáttaviðtali á dögunum. Ben var þvoglumæltur og sljór til augnanna þegar hann spallaði við þáttastjórnanda þáttarins Any Given Wednesday, sem er íþrótta- og poppmenningarþáttur á HBO sjónvarpsstöðinni. Hann hrækti út fúlyrðum um NFL, því þeir settu Tom Bady í bann fyrir að neita þeim um að láta þá fá símann sinn og notaði f-orðið hvorki meira né minna en 17 sinnum í þessu fimm mínútna viðtali.
Framkoma Ben varð til þess að fólk fann sig knúið til að skilja eftir fremur slök ummæli um hann á samfélagsmiðlum. Einn áhorfandi sagði “Hann svitnar vodka” og annar sagði “Fjárinn, fáðu þér aðstoð við alkóhólisma. Þessi tómu augu eru ógnvekjandi”.
Sjá einnig:Ben vill fá Jennifer aftur
Greinin birtist fyrst í amk, fylgiblaði Fréttatímans
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.