Ben Affleck (44) hefur sagt frá því að hann sé nýkominn úr áfengismeðferð. “Ég hef lokið við meðferð vegna alkóhólisma, eitthvað sem ég hef þurft að kljást við og mun halda áfram að kljást við. Ég vil lifa lífinu til fullnustu og vera besti faðir sem mögulegt, ” skrifaði Ben á Facebook. Ben mætti á Óskarverðlaunaafhendinguna meðan á meðferðinni stóð en hann fékk sérstakt leyfi til að vera viðstaddur.
“Ég vil að börnin mín viti að það er engin skömm að því að leita sér aðstoðar þegar maður þarf á því að halda. Mig langar líka að veita þeim styrk sem þurfa hjálp en þora ekki að taka fyrsta skrefið. Ég er heppinn að hafa ástkæra vini og fjölskyldu á bakvið mig, þar með talda barnsmóður mína, Jen, en hún hefur stutt mig og hugsaðu um börnin okkar á meðan ég hef gert þetta sem ég þurfti að gera. Þetta var fyrsta skrefið í átt að bata.”
Ben fór í meðferð á meðferðarstöð í Kaliforníu en þetta er í annað skiptið sem hann fer í meðferð en hann fór seinast í meðferð þegar hann var 28 ára gamall.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.