Ben Affleck óþekkjanlegur – Skilnaður í aðsiglingu?

Fréttamiðlar hafa birt greinar um það að ekki sé allt með felldu í hjónabandi Ben Affleck (51) og Jennifer Lopez seinustu mánuði. Nú hafa þær getgátur fengið byr undir báða vængi eftir að Ben var myndaður í Los Angeles í gær, klæddur í Red Hot Chili Peppers bol, gráar gallabuxur og glænýja klippingu.

Margir hafa sett athugasemd við myndina á samfélagsmiðlum og vilja meina að Ben sé augljóslega með gráa fiðringinn á meðan aðrir segja að hann sé örugglega að leika í nýrri bíómynd. Aðrir segja að hann líti illa út og sé greinilega að ganga í gegnum erfiða tíma.

SHARE