Það er alveg sama hvað Jennifer Garner (44) og Ben Affleck (44) eru að ganga í gegnum í sínu persónulega sambandi, þau hugsa alltaf um börnin sín fyrst. Hér eru þau að spóka sig í Los Angeles með börnin sín þrjú, Violet (11), Seraphina (8) og Samuel (5).
Þau virtust njóta þess að vera saman og krakkarnir voru hoppandi kátir með foreldrum sínum.
Það eru innan við tvær vikur frá því að Ben sagði frá því opinberlega að hann hafi farið í meðferð og sé búin að snúa lífi sínu til betri vegar.