Haltu fyrir augun á barninu; Nicki Minaj er loks búin að gefa út myndband við smellinn Anaconda og það logar af losta og þrýstnum bossanum á Nicki Minaj …. í pínulitlum stuttbuxum, bleikum G-streng …. og netasokkabuxum. Að ekki sé minnst á þrýstinn bossann á Nicki Minaj í rennblautum sundbol. Þrýstinn bossinn á Nicki Minaj hefur fyrir löngu gert garðinn frægan en þetta mun vera í fyrsta sinn sem Drake þegir út heilt tónlistarmyndband og er dreginn á tálar af Nicki Minaj um leið. Jafnvel er maðurinn orðlaus.
Hefur NIcki loks gengið of langt?
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.