Stórleikarinn Orlando Bloom (39) skellti sér í fríið til Sardiníu með kærustu sinni Katy Perry á dögunum. Hann gerði sér síðan lítið fyrir og klæddi sig úr stuttbuxunum og sprangaði um ströndina á adamsklæðunum einum fata. Hann bæði sólaði sig og skellti sér berrassaður á bretti með kærustunni og virtist hún una sér afar vel þrátt fyrir uppátæki leikarans.
Sjá einnig: Eru Orlando Bloom og Katy Perry trúlofuð?
Katy ákvað þó að gera ekki slíkt hið sama og Orlando, en naut þess að sitja á brettinu með bjór í hendi og knúsuðu þau síðan hvort annað. Ekki bar á öðru en að þetta 7 mánaða samband þeirra gangi ljómandi vel og að þau séu hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.
Orlando bar bossann sinn afar vel og ekki bólaði á neinni spéhræðslu hjá Lord Of The Rings álfinum.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.