Beyoncé og Jay Z, sem eitt sinn tróndu á toppi Forbes listans, eru ekki lengur ríkasta parið í skemmtanabransanum.
Það munu vera þau Taylor Swift og Calvin Harris sem hirða toppsætið að þessu sinni, en parið er eitt best launaðasta parið í bransanum í dag og státa þau af samanlagðri innkomu sem nam litlum 156 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári, en það munu vera yfir 20 milljarðar íslenskra króna …
Ríkasta parið í Hollywood eru þau Taylor og Calvin, sem velta milljörðum
… þó er langt frá því að Bey og Jay hafi hrapað af listanum, en þau tróna í öðru sæti þetta árið með einungis 110 milljónir Bandaríkjadala, eða um það bil 14 milljarða íslenskra króna í árstekjur árið 2014, sem sennilega ætti að tryggja stjörnuparinu sæmilega afkomu.
Beyoncé og Jay Z þénuðu einungis 14 milljarða íslenskra króna á síðasta ári
Auðvitað tekur listinn svo breytingum á hverju einasta ári, svo forvitnilegt verður að vita hver vermir toppsætið næsta sumar. En ekki væsir um poppstjörnur vestanhafs, svo mikið er víst.
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.