Beyonce er þekkt fyrir sönghæfileika sína og kynþokkafullan líkamsvöxt en nýjasta tölublað tímaritsins Flaunt Magazine inniheldur líklega mest ögrandi myndir af drottningunni hingað til.
Myndirnar voru teknar af Robin Harper en Beyonce er afar fáklædd á þeim öllum.
Sjá einnig: Beyonce gefur sér tíma fyrir dóttur sína – Sjáðu myndirnar!
Á laugardaginn síðasta steig söngkonan á svið á tónlistarhátíðinni Made in America og tryllti lýðinn með kraftmiklum flutningi og kynæsandi dansi. Það kom skemmtilega á óvart þegar myndband náðist af eiginmanni hennar, engum öðrum en Jay-Z, standa á meðal áhorfenda.
Sjá einnig: Beyoncé Knowles og Obama í ástarsambandi
Svo virðist sem Jay-Z hafi skemmt sér konunglega en hann söng og dansaði með öllum lögum Beyonce en reyndi þó að láta lítið bera á sér þar sem hann huldi höfuð sitt undir grárri hettu á peysunni sinni.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.