Loksins hefur slæm hegðun Justin Bieber bitið hann í rassinn. Í nóvember var hann á heimleið frá Ástralíu ásamt félögum sínum, þegar þeir voru stoppaðir á flugvellinum og leitað í farangri þeirra að eiturlyfjum. Og viti menn, maríjúana fannst í tösku hjá félaga hans. Sá var kærður og þarf að sæta refsingu fyrir athæfi sitt.
Sögusagnir eru á kreiki um að eiturlyfin hafi verið eign Bieber, en félaginn tekið á sig skellinn fyrir hann.
Bieber mun aftur á móti hafa yfir rifið kjaft við tollverði og fengið stranga aðvörun fyrir en að lokum var öllum leyft að yfirgefa landið.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.