Rob og Blac hafa opinberað að þau eiga von á barni saman. Þau ætluðu að opinbera það á mæðradaginn en fréttirnar láku á slúðursíðu þar vestra. Blac kennir Kardashian fjölskyldunni fyrir að hafa stolið þrumunni þeirra og jafnvel kennt þeim um að fregnirnar um óléttuna hafi lekið og segir að þau hafi notað það til að upphefja þáttaseríu sína KUWTK.
Sjá einnig: Eru Blac og Kim orðnar perluvinkonur?
Parið hefur verið saman frá því í janúar á þessu ár og tilkynnti nýlega trólofun sína. Þau birtu á sama tíma Emoji mynd af ófrískri Blac Chyna á Instagram og eru þau algjörlega í skýjunum.
Sjá einnig: Rob felldi tár þegar Blac Chyna játaðist honum
Sjá einnig: Rob ætlar í svuntuaðgerð til að gleðja Blac Chyna
Fyrrum kærasti og barsfaðir Blac Chyna, Tyga óskaði þeim til hamingju með óléttuna, en það vill svo skemmtilega til að hann er kærasti Kylie Jenner, systir Rob. Hann var sá fyrsti af meðlimum Keeping Up With The Kardashians hópnum til að óska þeim til hamingju.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.