Hvað er betra en gott Bolognese með tagliatelle, parmesan og góðu rauðvíni. Einnig ber ég fram með þessu virkilega góðar brauðbollur baðaðar í kryddolíu og feta uppskrift af því er hér inn á síðunni.
Uppskrift er fyrir 5-6
Hráefni:
3 msk olía
1 vænn laukur
2 meðalstórar gulrætur
2 stiklar sellerý
450 g hakk t.d naut
230 g svínahakk
6 hvítlauksrif pressuð
2 dósir maukaðir tómatar í dós
225 g tómarpúrra
1 dl rauðvín
215 ml kjötsoð (Ég setti 1 kjötkraft frá knorr í pott ásamt 500 ml af vatni hitaði og notaði af því 215 ml)
2 tsk origano þurrkað
2 msk steinselja þurrkuð
2 tsk sjávar salt
1½ tsk svartur pipar malaður
130 ml nýmjólk
1 msk basilika þurrkuð
1 tsk sykur
Aðferð
Setjið olíu í pott.
Skerið lauk smátt niður, gulrætur og sellerý smátt í litla teninga.
Setjið í pottinn steikið þar til mjúkt.
Bætið hakkinu út í steikið þar til nánast klárt.
Bætið rauðvíni út í látið malla á meðalhita í 5 mín.
Útbúið kjötsoð 1 kjötkraftur frá knorr settur í pott ásamt 500 ml af vatni hitið að suðu hrærið saman.
Bætið út í pottinn kjötsoði, tómötum, tómatpúrru, origano, steinselju, hvítlauk, salti og pipar blandið vel saman hitið að suðu lækkið undir setjið lok á pottinn, látið krauma á vægum hita í 1 klst. Eftir klukkutíma bætið þið út í nýmjólk, basiliku og sykri, látið malla áfram í 1 klst. Smakkið til bætið út í smá salti ef þurfa þykir.
Sjóðið tagliatelle pasta, smellið á disk setjið bolognese sósuna yfir, blandið saman, raspið parmesan yfir og njótið. Einnig mæli ég með að bera fram brauðbollur baðaðar í kryddolíu og feta með þessu.
Njótið vel,
Ragnheiður Stefáns Matarlyst