Hér er mögulega á ferðinni það undarlegasta sem ég hef séð. Jú, eiginlega það ógeðfelldasta líka. Casie ferðast með ösku látins eiginmanns síns hvert sem hún fer. En það er ekki nóg, heldur snæðir hún öskuna einnig.
Þetta byrjaði þegar hún ætlaði að færa öskuna úr kassanum sem hún fékk hana í og yfir í fallegan vasa. Dálítið af öskunni fór á fingurinn á henni og hún gat ekki hugsað sér að þvo hana af. Þannig að hún sleikti. Sleikti öskuna af puttanum á sér. Og núna getur hún ekki hætt.
https://www.youtube.com/watch?v=JJKLNlKpNAE&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs&ps=docs
Tengdar greinar:
10 ógeðslegir hlutir sem fólk borðar
8 fremur ógeðfelldir hlutir sem við gerum í einrúmi
Ógeðslegu hlutirnir sem fólk gerir – Myndband
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.