Brad Pitt hefur látið sjá sig í fyrsta skiptið opinberlega eftir skilnaðinn við Angelina Jolie. Hann fór með vinkonu sinni Julia Roberts á sýningu kvikmyndarinnar Moonlight í Los Angeles, en fyrirtæki hans Plan B framleiddi kvikmyndina.
Sjá einnig: Brad Pitt ætlar aldrei að ganga í hjónaband aftur
Moonlight er ævisaga og segir hún frá ungum svörtum manni frá barnæsku fram í fullorðinsár og hvernig hann ólst upp í úthverfi Miami. Brad mun síðan koma í annað sinn fram nú á dögunum vegna frumsýningar nýjustu kvikmyndar sinnar Allied.
Angelina hafði alltaf verið afar afbrýðisöm vegna eldheitra ástarsena sem hann þurfti að leika í með leikkonunni. Einnig var Brad ásakaður fyrir að halda framhjá með leikkonunni Marion Cotillard.
Staðan á skilnaði þeirra og forræðisdeilu er að Angelina fékk áframhaldandi forræði yfir börnum þeirra áfram. Brad er þó enn að berjast fyrir því að hann fái sameiginlega umsjá.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.