Hin brasilíska Andressa Damiani(23) hefur hlotið viðurnefnið brasilíska mennska Barbie dúkkan. Hún er með 50 sm mjótt mitti, notar brjóstahaldara númer 32F og er hávaxin og grönn. Hún segir að hún hafi aldrei farið í lýtaaðgerð, en að fólk hafi sagt við hana að hún líktist dúkku frá því hún var lítið barn. Þegar hún komst á unglingsaldurinn fannst henni viðurnefnið mjög óþægilegt, þar sem hún var mjög feimin en þegar hún varð tvítug ákvað hún að breyta til. Þar sem henni fannst hún ekki passa inn í nein önnur útlitsviðmið, ákvað hún að ýta undir dúkku útlit sitt og fór að mála sig eins og barbídúkku.
Sjá einnig:Enn ein mennsk Barbie – Segist ekki hafa farið í lýtaaðgerðir
Hún segist eingöngu nota hárlengingu, farða og linsur til að fá útlitið og hefur hún gert þó nokkuð mörg myndbönd á Youtube um farðanir sínar. Hún vekur athygli hvert sem hún fer, en um leið hræðast hana margir og finnst hún vera heldur ónáttúruleg í útliti.
Aðeins förðun: Andressa hefur einnig fengið viðurnefnið Elsa, þar sem sumum þykir hún líkjast Elsu í Frozen.
Sjá einnig: Heimildarmynd um Barbie-dúkkuna frá Úkraínu – Myndband
Svona lítur hún út án förðunar! Galdurinn á bak við útlitið er farði, augnhár, hárlengingar og augnlinsur, annað segir hún vera eins og hún er náttúrulega.
Sjá einnig: Barbiedúkkan í 56 ár
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.