Britney Spears (34) steig á svið í öllu sínu veldi á Billboard Music Awards. Hún flutti 5 mínútna blöndu af vinsælustu lögum sínum síðari ára og dansaði hún af öllum krafti á þeim tíma.
Sjá einnig: Britney Spears spókar sig um á bikini
Sviðsframkoma hennar kom öllum að óvörum, því hún virkaði fremur feimin fyrst þegar hún stóð á sviðinu, ásamt því að fyrir nokkrum árum var hún á slæmum stað í lífinu þegar hún kom fram.
Sjá einnig: Olíuborin Britney Spears í nýjum myndböndum
Britney leit gríðarlega vel út á sviðinu og var í besta formi lífs síns, en brúðarkjólahönnuðurinn Mark Zunino var sá sem sá um klæðnað hennar að þessu sinni.
Hún hefur verið mjög fræg í meira en áratug og hefur átt sín erfiðu tímabil, en hún tók að þessu sinni við Millennium verðlaunum og er hún sú þriðja sem hefur hlotið þann titil, ásamt Beyonce og Whitney Houston á undan henni.
Sjá einnig: Fáránlega fyndið: Britney Spears hrekkir menn í atvinnuviðtali
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.