Þessi kaka er mjög stór partur af jólunum fyrir ansi marga. Þessi uppskrift er frá Eldhússystrum og lætur mann slefa.
Þessi uppskrift er stór, það má vel helminga hana, baka á tveimur ofnplötum, og skera hvorn kökubotn í tvennt til að búa til fjóra kökubotna. Sennilega mætti líka búa bara til fjórðun og baka á einni plötu ef því er að skipta og skipta þeim botni í fjóra jafna hluta
Kökubotnar
400 gr smjör/smjörlíki
300 gr sykur
3 egg
400 gr síróp
1 kg hveiti
3 tsk hjartarsalt
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk engifer
3 msk kakó
Smjörkrem
1 kg flórsykur
500 gr smjör, við stofuhita.
4 eggjarauður (má sleppa en setjið þá t.d. síróp eða mjólk í staðin til að þynna út).
1 tsk vanilludropar
1. Kökubotnar: Öllum hráefnum hrært saman í hrærivél þar til úr verður þykkt deig.
2. Deiginu skipt í 4 jafna hluta og hver hluti flattur út á bökunarpappír (sem er jafnstór og ofnskúffan sem kakan er bökuð í). Sjá mynd að neðan. Best er að setja deigið á bökunarpappír og fletja það út/dreifa vel úr því með höndunum til að byrja með. Svo er annar bökunarpappír settur ofan á og deigið flatt út með kökukefli til að ná því jöfnu og sléttu.
3. Hver hluti deigsins bakaður við 175°c (á undir og yfirhita, ekki blæstri) í ca. 10 mínútur, neðst í ofninum. Látið botnana kólna vel.
4. Krem: Flórsykri og smjöri hrært vel saman. Eggjarauðunum bætt út í einni í einu og allt hrært vel þar til kremið er slétt.
5. Kakan sett saman: Kreminu skipt í þrjá jafna hluta og smurt á kökubotnana, sem er staflað saman – einn á eftir öðrum með kremi á milli. Endið á kökubotni. Kantarnir eru skornir af og kakan er svo skorin ca 8 jafna bita (smekksatriði). Til að mýkja kökuna aðeins upp áður en hún er skorin má setja blautt viskastykki yfir hana í dálitla stund. Kakan geymist afar vel í frysti.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.