Vegir Beyoncé eru með öllu órannsakanlegir; HÚN hafði ekki fyrr greint frá því í gær að tveir óútkomnir smellir eftir drottninguna hefðu lekið á netið en fullbúið myndband við stórsmellinn 7/11 kemur út á YouTube en tilefnið er Platinum útgáfa Beyoncé sem væntanleg er í næstu viku eins og lesa mátti á vefnum í gær.
Myndbandið, sem er súrrealískt í meira lagi og er skotið að því er virðist á GoPro myndavél sýnir Beyoncé í æðiskasti, á handahlaupum, hringjandi símtöl með tánnum og hoppandi á svölum í hláturskasti.
Áhorfið er ótrúlegt, en aldrei fyrr hefur Beyoncé kastað gjörsamlega fram af sér beislinu, danglast utan í eigin dönsurum og látið eins og smástelpa að vori í stuttbuxum, öskrandi inni á hótelherbergi, blásandi í áramótavellur með nýársgleraugu frá árinu 2oo5 … en þegar þessi orð eru rituð er tæpur sólarhringur frá útgáfu myndbandsins sem hefur rakað hvorki meira né minna en 5 milljónum áhorfa á YouTube og er ekkert lát á tölunum sem halda áfram að rísa án afláts.
#breaktheinternet
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.