Caitlyn Jenner er gríðarlega stolt af því að tilkynna að hún hefur verið valin nýtt andlit fyrir sportfatnað H&M verslunarkeðjunnar. Hún birti mynd úr myndatökunum, þar sem hún var stödd í ræktinni og klædd í íþróttaföt frá H&M frá toppi til táar.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner og Arnold Schwarzenegger eru perluvinir
Fyrir stuttu síðan var Caitlyn fengin til að vera andlit Mac förðunarvaranna og hefur hún unnið með þeim að gerð sérstaks varalits í tilefni þess. Svo virðist sem fyrirsætuferill hennar sé rétt að byrja og spennandi verður að fygljast með framvindu mála hjá henni. Það er ekki of seint að byrja fyrirsætuferil sinn 66 ára gömul.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner er tilbúin í að fara á stefnumót með mönnum
Caitlyn er ekki eina fyrirsætan, sem gengið hefur í gegnum kynleiðréttingarferlið, en Andreja Pejic gengur um tískupallana fyrir hönd H&M.
Sjá einnig: Caitlyn Jenner: „Það er vegna þessa sem guð setti mig á þessa jörð“
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.