Calvin Harris hefur brugðið á það ráð að gera lag um framhjáhald Taylor Swift. Sjálf hefur hún gefið út fjöldan allan af lögum sem fjalla um framhjáhald og hjartasár, en í þetta skiptið er Tom Hiddleton látinn tala í laginu hans Calvin.
Sjá einnig: Taylor Swift hittir nýju tengdamömmuna
Hann lætur eins og Tom segir með djúpri röddu “Þú vilt ekki segja vinum þínum frá mér” og segir síðan sjálfur “ég sé á netinu að þú ert byrjuð að vera góð stelpa og fara með kærastanum þínum í ferðalög, sýna ástúð. Haltu áfram að þykjast”. Síðan heldur hann áfram að tala út frá sjónarhorni Tom.
Það verður svo sannarlega forvitnilegt að sjá hvernig Taylor bregst við sínu eigin meðali og sorglegri ástarsögu. Calvin og söngvarinn John hafa verið í Mexikó að taka upp lagið sem verður aðgengilegt almenninningi innan skamms.
Taylor og Tom hafa verið mynduð daglega og eru þau svo sannarlega eins og turtildúfur hvar sem þau stíga niður fæti. Athyglin er svo mikil á þetta fræga ástarsamband vegna þess að það er örstutt síðan Taylor og Calvin hættu saman og því ekki furða að hún og Tom hafa fengið viðurnefnið Hilldleswift.
Sjá einnig:Taylor Swift og Calvin Harris hætt saman!
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.