„Ég átti það til að berja höfðinu mínu við tré til að reyna að rota mig“: Cara Delevingne talar um að valda sjálfri sér skaða og hugleiða sjálfsvíg sem unglingur.
Hún talar um að hafa fengið allt upp í hendurnar á yngri árum en vandamál á uppvaxtarárum hafi orðið til þess að hún reyndi að skaða sjálfa sig á unglingsárum. Cara sem er 22 ára ofurmódel, segir að hún hafi klórað sig til blóðs, misnotað uppáskrifuð lyf, reykt hass og tekið önnur eiturlyf. Kvíði, þunglyndi og sjálfshatur varð til þess að hún skaðaði sig en í dag er hún hamingjusamari sem aldrei fyrr. Henni fannst lítið til sín koma en ákvað einn daginn að annað hvort yrði hún að læra að elska sjálfa sig eða taka eigið líf.
Súpermódel: Cara hefur lengi þurft að kljást við erfiðleika.
Vandræðaunglingur: Cara, 15 ára með Móður sinni Pandora og miðjusystir Poppy árið 2007
Cara 10 ára með fjölskyldu sinni: Poppy, móðir hennar Pandora, faðir hennar Charles, systir hennar Chloe og fyrrum eiginmaður.
Hún hefur verið á forsíðu fjölda tímarita.
Velgengni: Cara er orðin ein af eftisóttustu módelum heims.
Henni finnst gaman að vera kjáni.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.