Celine Dion (48) felldi tár þegar sonur hennar, René-Charles (15) kom henni á óvart eftir fyrstu opinberu sviðsframkomu hennar í sjónvarpi eftir að eiginmaður hennar lést í janúar á þessu ári. Hann mætti á sviðið og færði henni verðlaunagripinn sem henni var ætlaður.
Sjá einnig: Enginn vill kaupa húsið hennar Celine Dion
Mér þykir þetta mjög leitt. Mér þykir leitt að gráta. Ég vill vera sterk fyrir fjölskyldu mína og börnin mín.
Þakka ykkur innilega fyrir. Þetta er mjög mikill heiður. Tónlist hefur verið ástíða mín frá því áður en ég man eftir mér.
Sjá einnig: Celine Dion kyssir kistu mannsins síns
Ég hélt að ég myndi komast í gegnum kvöldið án tára og sýna styrk, en ástin sigraði og ég féll saman.
Celine segir einnig að hún er 48 ára gömul og hefur misst ást lífs síns, að hún saknaði hans þegar hann var heilbrigður en ekki þegar hann var veikur, en segir að maður getur ekki verið sjálfselskur og því væri nauðsynlegt að leyfa fólki að fara í friði.
Sjá einnig: Sonur Celine Dion flytur ræðu í jarðaför föður síns
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.