Fyrirsætan Chrissy Teigen og söngvarinn John Legend eignuðust dóttur 14. apríl síðastliðinn. Hjónin gáfu dóttur sinni nafnið Luna Simone Stephens og eru þau öll í skýjunum, þrátt fyrir einhverja syfju.
Sjá einnig: John Legend syngur fyrir krúttlegustu brúðhjónin
Chrissy segir að hún hafi átt í erfiðleikum með að verða ófrísk og hafi þurft að fara í frjósemismeðferðir vegna þess. Hún hafi einnig valið úr fósturvísum til að ganga í skugga um að hún myndi eignast dóttur í þetta skiptið.
Nafnið sem þau völdu á dótturina, Luna merkir tunglið á latínu, en John var ekkert sérlega hrifinn af því nafni, svo Chrissy brá á það ráð að spyrja forseta Bandaríkjanna um það hvað honum fyndist um nafnið. Obama sagðist líka nafnið mjög vel, svo að hún segir John hafa orðið að sætta sig við það.
Sjá einnig: Chrissy Teigen: Kasólétt og glæsileg í verslunarferð
Sjá einnig: You & I: John Legend með 1000 vasaklúta óð til allra kvenna
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.