Þær Grace, Louisa og Mamie Gummer, dætur leikkonunnar Meryl Streep, eru stórglæsilegar í nýrri auglýsingaherferð fyrir H&M og & Other Stories.
Grace (til vinstri) og Mamie (til hægri) hafa fylgt í fótspor móður sinnar og reynt fyrir sér í leiklistinni. Lousia (í miðjunni) er hins vegar fyrirsæta.
Ólíkt mörgum öðrum Hollywood-stjörnum hefur Meryl Streep verið gift í heil 36 ár. Eiginmaður hennar heitir Don Gummer og eiga þau einnig soninn Henry Wolfe, en hann er tónlistarmaður.
Tengdar greinar:
Obama Bandaríkjaforseti sæmdi Meryl Streep heiðursorðu í gær
Ótrúlega skemmtilegar myndir frá Óskarsverðlaunahátíðinni
Meryl Streep keypti hús sem byggt var 1954 á 536 milljónir
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.