Fjölmiðillinn Daily Mail lagðist á lágt plan á laugardaginn þegar þeir birtu grein um Jennifer Aniston þar sem ýjað var að því að hún væri orðin feit, eftir að myndir birtust af henni við tökur á nýrri bíómynd.
Hin 46 ára gamla leikkona er nýkomin úr brúðkaupsferð á Bora Bora en hún og eiginmaður hennar, Justin Theroux, fóru í rómantíska ferð eftir að hafa gift sig í laumi nú fyrir stuttu.
Sjá einnig: Jennifer Aniston er brjálæðislega hamingjusöm
Daily Mail hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir fréttina og þá sérstaklega fyrirsögnina þar sem fjölmiðillinn spyr hvort leikkonan hafi borðað of mikið í brúðkaupsferðinni.
Fjölmiðillinn Huffington Post gagnrýnir Daily Mail harðlega fyrir þessa frétt og segja að hún sé ógeðsleg og ýti á veika bletti hjá fólki með átraskanir.
Sjá einnig: Stunduðu líkamsrækt af fullum krafti í brúðkaupsferðinni
Jennifer Aniston lítur glæsilega út en Daily Mail fannst æfingafötin sem hún klæddist þegar myndir náðust af henni gera lítið sem ekkert til að fela aukakílóin hennar.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.