Þessi dásamlega íbúð er í virðulegu fjölbýli við Þórsgötu í Reykjavík. Húsið nýtur verndar 20. Aldar bygginga og hefur verið tekið í gegn á utan með upprunalegt útlit að leiðarljósi. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð en haldið í gamla sjarmerandi tímann.
Gluggarnir í íbúðinni eru geggjaðir
Takið eftir gólffjölunum
Loftlistar og rósettur í jugendstíl kalla fram sjarmann í svona gömlu húsi
Eldhúsið stílhreint
Búr eins og tíðkaðist í gamla daga
Ný tæki í eldhúsinu en innréttingin falleg en gömul
Hjónaherbergið með fataherbergi
Stór og rúmgóð herbergi
Barnaherbergið
Takið eftir hillunum upp við loftið
Flísar á holinu
Baðherbergið einfalt og í takt við baðherbergi á þeim tíma sem húsið var reist
- Glæsileg bygging sem kallar fram fallega götumynd við Þórsgötuna
Árni býr í Reykjavík en ólst upp í Garðinum. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja og nam stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Að því gefnu hefur hann mikinn áhuga á stjórnmálum, ásamt því að vera mikill áhugamaður um hönnun, arkitektúr og ljósmyndun. Árni hefur gaman að tónlist og leiklist, kvikmyndum og matargerð annarra. Hann viðurkennir fúslega að vera ömurlegur í eldhúsinu og leggur ekki á nokkurn mann að koma í mat til sín. Nýja dellan er að vaða um íslenska náttúru með myndavélina og reyna að ná góðum myndum með misjöfnum árangri. Árni er mikil félagsvera og nýtur sín best í góðra vina hópi og með fjölskyldunni. Hann er dýravinur, en gengur illa að eiga gæludýr. Þau annað hvort drepast eða flýja af heiman. Árni gleymir sér á netinu við að skoða fallega hönnun, heimili og fasteignasíðurnar eru í miklu uppáhaldi. Árni deilir með okkur því sem hann fellur fyrir hverju sinni og reynir að koma víða við í stílum og hönnun til að ná til sem flestra. Árni heldur úti Facebooksíðu þar sem hann deilir hugðarefnum sínum, enda kallar hann síðuna Hugarheim Árna.