Ekki blikka augunum í þessar 30 sekúndur sem auglýsingin rennur í gegn, þú gætir misst af einhverju! David Beckham er hér næstum því nakinn í nýjustu auglýsingaherferð sinni fyrir sænska tískurisann H&M. Gerðar voru tvær auglýsingar sem fólk gat kosið á milli til að sýna á Super Bowl leiknum síðustu helgi, þessi hér fyrir neðan og önnur sem sýndi minni nekt á kappanum. Auðvita var sú með meiri nekt, magavöðvum og upphandleggjum fyrir valinu og skal engan kvenpening undra. Sjón er sögu ríkari.