Munið þið eftir fyrirsögninni „Já hann er nakinn!“ ?
Þeir gerast varla heitari en David Gandy og það verður að segjast eins og er að hann er í sérstöku uppáhaldi hjá okkur konunum á hun.is. Kappinn sem hefur glatt lesendur okkar með fallegum myndum af sér, fagnar 34 ára afmælinu sínu í dag. David sem er fæddur og uppalinn í Bretlandi, hefur unnið fyrir öll helstu tískumerki heims. Árið 2006 byrjaði hann að vinna fyrir Dolce & Gabbana. Seinna var hann aðalandlit þeirra í herferðinni „Light blue“ og er enn. Árið 2011 gaf Dolce & Gabbana út bók með David um samstarf þeirra í gegnum árin og skartar hún fjölmörgum myndum af David á 280 blaðsíðum og á mörgum þeirra er hann ekkert að klæða sig upp. Þessi fer klárlega á afmælisgjafaóskalistann fyrir næsta afmæli!!
Við hér á Hún.is óskum David til hamingju með afmælið.