Nú er komin á markað ný veisla fyrir húðina frá Dove. Hún heitir því fallega og viðeigandi nafn Dove Derma Spa Goodness og er sannkölluð lúxusvara á frábæru verði. Línan er byggð á „the face care technology Cell-Moisturisers“ sem eflir raka húðfrumunnar, dásamlegri Buckthorn olíu sem mýkir og styrkir ásamt nauðsynlegum omega olíum fyrir mjúka og tónaða húð.
Ég hef verið að nota þessar vörur upp á síðkastið og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum með þessi krem. Þau eru svo mjúk og æðisleg og manni líður eins og maður sé búin að vera í einhverri húðmeðferð þegar maður hefur farið í sturtu og borið á sig kremin. Þvílíkur unaður.
Sérstaklega held ég upp á olíuna en hún er silkimjúk og gefur húðinni ljóma sem er einstakur. Ég myndi mæla með þessum vörum fyrir allar konur sem vilja fríska upp á sig og fá þennan heilbrigða ljóma sem við þráum allar svo heitt.
- Húðkrem : 300 ML dós – þétt, girnilegt og gælir hreinlega við húðina.
- Húðolía: rík af omega og buckthorn olíu nærir og gefur fallegt “ glow“
- Handáburður: flauelsmjúkar hendur og jafn húðlitur. Eykur ljóma.
- Dove Summer revive: húðmjólk með náttúrulegum litarefnum sem næra húðina og gefa henni sólkysst útlit. Hægt að byggja upp fallegan lit með því að nota á hverjum degi.
Ef þið viljið eiga kost á að fá svona dýrindispakka þá er það eina sem þið þurfið að gera er að skrifa í athugasemdir „Dove já takk“. Við drögum út 2. júní.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.