Sturtuferðir eru yndislegar. Að halda því fram að ekki sé hægt að fara í jurtabað nema láta renna í baðkarið er líka helber misskilningur; með grisjupoka og hnefafylli af jurtum má búa til yndislegt jurtabað í sturtunni, sem mýkir og nærir, hressir og kætir.
Í raun, já, snýst galdurinn um að búa til einskonar tepoka sem hengdur er á sturtuhausinn og fylla af jurtum. Skrúfa svo frá vatninu og njóta undir ilmandi heitu vatninu – fullkomin slökun og frábær endurnæring fyrir hörundið.
.
Svona er sturtupokinn búinn til:
Úr einföldum, lífrænum grisjupoka er sniðinn einskonar tepoki – nægilega stór þó til að rúma eins og 2 dl af vænlegum, þurrkuðum jurtum að eigin vali. Gættu að því að pokann verður að binda vel saman til að tryggja að jurtirnar fari ekki á flug í sturtunni og endi í niðurfallinu. Þegar pokinn hefur verið notaður einu sinni má þurrka hann – tæma notaðar jurtirnar úr pokanum, þvo hann vandlega upp úr volgu vatni og endurnýta hann allt upp á nýtt.
.
Svona er sturtupokinn notaður:
Þetta má gera á tvenna vegu; annars vegar má hengja pokann tryggilega neðan á sturtuhausinn á þá vegu að vatnið nái að renna gegnum jurtirnar og svo má einnig gera jurtapokann þannig úr garði að fari vel í hendi; þá er pokinn vættur vel undir sturtuhausnum og yndislegur jurtalögurinn borinn á allan líkamann í sturtunni með lófanum. Rétt eins og um svamp sem fer vel í hendi sé að ræða; nema það er jurtapoki sem nærir hörundið. Hér á eftir fara nokkrar uppskriftir að undursamlegum jurtapokum í sturtuna.
.
Grunnuppskrift:
3 dl þurrmjólk
1 dl Epsom salt
½ dl Matarsódi
2 msk Maísmjöl
Þetta er grunnuppskriftin – hún skal alltaf notuð – en fjölbreytilegar jurtir má einnig setja út í grunnblönduna og hér fara tillögur að jurtum í baðpokann:
.
Slakandi:
1 dl Lavender
1 dl Epsom salt
.
Lúxusjurtabað:
1 dl haframjöl
1 dl Lavender
.
Róandi:
1 dl haframjöl
½ dl rósmarín
½ dl kamilla (kamillute dugar vel)
.
Kamillublanda:
1 dl af eftirfarandi: Epsom salt, Lavender, Kamillublóm
.
Frískandi blanda:
1 dl af eftirfarandi: Timían, Sage, Lavender, Mynta, Lárviðarlauf, Rósmarín
.
Mýkjandi blanda:
1 dl af eftirfarandi: Lavender, Rósablöð, Sage, Rósmarín
.
Kryddjurtablanda:
1 dl Rósmarín
1 dl Basilikum
1 dl haframjöl
Heimild: tipnup.com
Tengdar greinar:
DIY – Af hverju að nota heimagerð sjampó?
DIY – Ertu með viðkvæma húð þá er hunang svarið fyrir þig
Dekur helgarinnar
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.