Óróar hafa alltaf heillað mig. Þessi órói, frá Lovely Morning, er svo ótrúlega fallegur í einfaldleika sínum og upplagður að búa til með börnunum sínum. Ég man þegar mínir krakkar voru litlir, þá fannst þeim fátt skemmtilegra en að fara í göngutúr „í gull leit“ eins og við kölluðum það. Yfirleitt komum við hlaðin gulli tilbaka sem við oft á tíðum notuðum í föndur, eins og mamman sem bjó til þennan óróa, hefur gert með sínum börnum.
Uppistaðan í þessum óróa er band og viðarhringur ásamt fundna gullinu úr göngutúrnum.
Svona viðarhringir fást í handavinnuverlsunum og eru notaður við útsaum.
Góða skemmtun!
Þóra er keramikhönnuður og starfar sem slíkur á vinnustofu sinni í Hafnarfirði ásamt pistlaskrifum og kennslu. Þóra reynir að tileinka sér umhverfisvæna mannasiði á sem flestum sviðum og notar t.d. sem náttúrulegust hráefni í hönnun sína. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og ytra ásamt því að hafa komið að rekstri tengdum heilsu og hönnun.