Ertu að leita þér að dundi með börnunum um helgina? Þetta er skemmtilegt jólaföndur frá henni Lisa Summerhays en hún er með bloggið StubbornlyCrafty.com. Þessi pappajólasería er rosalega einföld og krúttleg:
Grátt karton
Karton í nokkrum litum sem þú vilt hafa í ljósunum.
Gatara
Garn eða band
Skæri
Klipptu grá kartonið í 3,5 cm x 10 cm stóra búta.
Litaða kartonið er klippt í 3 cm x 22 cm ræmur.
Gerðu brot í grá kartonið á 130 mm fresti og gerði gat í 3 hvern hluta eins og sést á myndinni. Límdu svo saman endana.
Til þess að gera „perurnar“ þarf að brjóta lengjurnar létt saman til helminga. Haltu svo endunum saman og þrýstu því niður í lófana, eins og á myndinni. Þegar þú dregur það til baka mun strimillinn líta út eins og ljósapera.
Svo eru gerð göt á endana með gatara
Sjá einnig: DIY: Svona býrðu til æðislega jólastjörnu
Síðan er allt þrætt saman með garni eða bandi
Sjá einnig: DIY: Föndraðu frábærar ljóskúlur
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.